Færsluflokkur: Bílar og akstur
6.4.2009 | 14:29
Þetta er ekki beint sexý - eða hvað?
Þetta er ansi pínleg frétt og Árni sem stal frá Þjóðleikhúsinu um árið og ætti að vera ærulaus maður núna, en er það ekki vegna þess að foringjar flokksins hans veittu honum æruna aftur fyrir síðustu kosningar... muniði? Þessi maður segist vilja fara í kosningabaráttu.
Þegar allt er hér í kalda koli. Væri ekki nær að Alþingi afgreiddi málin fyrst áður en menn fara í frí. Ég borga þessum mönnum ekki laun til þess að þeir geti slegið ryki í augun á mér. Vinnið bara vinnuna ykkar.
Þingmenn syngja og dansa darraðardans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.2.2009 | 10:12
23 ástæður fyrir uppsögn Davíðs -
Lesið þetta.....
http://www.helgi.is/faces/blog/entry.do?face=hjorvar&entry=84566
...ef þetta réttlætir ekki uppsögn Seðlabankastjóranna og breytingar á stjórn bankans þá er ekkert sem réttlætir uppsögn.
Mótmælt við Seðlabankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2009 | 13:52
Hefur ekkert með ríkisvæðingu bankanna að gera
Ég undrast þessa framsetningu. Það ætti að vera öllum ljóst sem eitthvað hafa fylgst með að bankarnir urðu gjaldþrota í október. Allt sem hefur verið gert síðan hefur miðast að því að halda hjólunum gangandi.
Hvort þjónustan hafi versnað stafar af hruninu. Ríkið hefði betur gripið fyrr inn í þar sem einkavæðingin og frjálshyggjan setti bankana á hausinn.
30.1.2009 | 13:39
Gömul frétt
Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart. Til hvers er hægt að ætlast af gjaldþrota bankakerfi. Þegar eigendur gömlu bankanna eru búnir að moka hundruðum milljóna út úr bankakerfinu er að sjálfsögðu ekki hægt að ætlast til annars en að þjónustan versni. Það er vonandi verið að endurreisa bankakerfið´.
Viðskiptaráð: Telja að bankaþjónusta hafi versnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.1.2009 | 17:33
Hverjum þjóna fjölmiðlarnir?
Pjetur St Arason, 1.1.2009 kl. 17:28
Þremenningunum sleppt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2008 | 12:12
0% líkur á að Geir sé hæfur forsætisráðherra
Maður sem man ekki eftir því að seðlabankastjóri hafi varað hann við bankahruninni í júní er greinilega ekki hæfur til þess að vera "aðal" í ríkisstjórninni.
Hvað hefur Davíð eiginlega á þessa menn.
Er ekki kominn tími til að hreinsa til í embættismannakerfinu, burt með alla pólitískt ráðna embættismenn, bankastjóra, dómara o.þ.h.
Er ekki kominn tími til að staðið verði faglega á máli.
Látið nú Davíð vera fyrstan. Steypið honum af stóli, hann fer þá bara í pólitík.
Það eru 0% líkur á að hann fái eitthvað fylgi.l
Eitthvað rotið í Seðlabankanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2008 | 10:11
Þetta hefði átt að fara í sjónvarpið á sínum tíma
Flott hjá G.Pétri að birta þetta
Já, sýnir vel við hvað er að etja, þegar menn hugsa meira um rassinn á sjálfum sér en hag þjóðarinnar.
Sem eiga jú að vera að starfa fyrir okkur.
Afnemum eftirlaunaósómann!
Gengur burt úr viðtali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2008 | 10:16
Pantið frystiskip
Eiga Nýsjálendingar ekki nóg af kjöti? Pöntum gám.
19.8.2008 | 10:14
Lambakjöt
Eiga Nýsjálendingar ekki nóg af kjöti. Breytum lögum og pöntum frystigám.
Rekstrargrundvöllur brostinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Pjetur St Arason
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Þegar við búum við fjölmiðla sem þjóna hagsmunum valdastéttanna. Eins og t.d. fréttirnar af atburðunum við Hótel Borg bera vott um. Þá skyldi mann ekki undra að andófsmenn skeri á nokkra útsendingakapla og meini Geir Hilmari Haarde aðgöngu að Hótel Borg.
Auðvitað er ekki hægt að réttlæta ofbeldi, hvorki lögregluofbeldi eða ofbeldi múgæsingamanna, en eins og við höfum séð fréttamenn sjónvarpsstöðvanna Stöðvar 2 og Ríkisútvarpins haga sér skal engan undra þó að það sjóði uppúr. Afnhverju spyrja fréttamenn valdaelítuna ekki gagnrýnna spurninga eins og mótmælendur eru spurðir hér í þessu myndskeiði af mótmælunum. Hver á annars vísi, er ekki stöð 2 hér málsaðili. http://visir.is/article/20081231/FRETTIR01/888977318
Hlutlægar og sanngjarnar fréttir takk, þar sem öllum málsaðilum er gert jafnhátt undir höfði.